TANNHVÍTTUN

Tannhvíttun

Stofan býður upp á tvær gerðir af tannhvíttun, heima hvíttunarsett og hvíttun sem er gerð á stofunni.

Tannlæknir byrjar á því að fara yfir hvaða meðferð hentar hverjum og einum sjúklingi.

Cavex Bite&White ABC Masterkit

Cavex býður upp á þriggja þrepa hvíttunar lausn fyrir örugga og árangursríka tannhvíttun.

Mát er tekið af tönnum og gerðar eru sérstakar skinnur sem sjúklingur fær með Cavex Bite & White ABC Master settinu og tekur með sér heim.

Aðferðin samanstendur af eftirfarandi skrefum:

Skref 1: Virkjaðu tennurnar með Stainless næringarkremi

Hreinsaðu tennurnar vandlega með Cavex Bite&White Stainless næringarkremi. Fyrir utan að hreinsa tennurnar hækkar þetta næringarkrem sýrustig í munni og hámarkar afköst hvíttunargelsins.

Skref 2: Hvíttun með Bite&White hvíttunargeli.

Settu eina línu af hvíttunargelinu í skinnina og vertu með í munninum í 30 til 60 mínútur til að ná sem bestum hvíttunar árangri fljótt og örugglega. Sýnt hefur verið fram á að Cavex-hvíttunargel sé áhrifaríkt jafnvel eftir eitt skipti.

Skref 3: Aðlögun með ExSense næringarkremi

Eftir hvíttun veitir Cavex Bite&White ExSense næringarkrem góða næringu fyrir tennurnar eftir meðferð og minnkar líkurnar á kuli. Skinnurnar eru hreinsaðar af öllu hvíttunargeli. Síðan er ExSense borið í skinnurnar og haft í munn í 5-10 mínútur.

Með þessum þremur einföldu skrefum veitir Cavex ABC Masterkit mjög áhrifaríka, örugga og umfram allt þægilega hvíttunarmeðferð.

Fyrir meðferð er farið vel yfir með sjúklingi hvernig skrefin eru gerð og í settinu eru einnig mjög skýrar leiðbeiningar á íslensku.

Með settinu koma 3 x 3 ml. sprautur með hvíttunargeli sem duga fyrir 15 daga meðferð. Á sprautunum er lok og er mælt með að loka þeim eftir notkun.  Einnig fylgir með Stainless næringarkrem og ExSense næringarkrem með settinu.

Tannhvíttun á stofu hjá tannfræðingi eða tannlækni

Byrjað er að bera á tannholdið sérstakt efni til varnar þess að tannhvíttunar efni efnið fari ekki á holdið. Síðan er borið á tannhvíttunar efni sem er mjög sterkt og við það lýsast tennurnar mjög mikið en eftir að tennurnar hafa náð fyrri raka má sjá lokaútkomuna. Meðferðin tekur oftast um 2 klukkustundir. Til þess að viðhalda árangrinum mælum við með að fólk fá sérstakar skinnur og hvíttunarefni til þess að nota heima.

 

Tannskraut

Tannskraut

Við bjóðum upp á úrvals tannskraut frá viðurkenndum aðilum eins og t.d.  Twinkles https://www.twinkles.net/ 

Einnig höfum við sérsmíðað grillz í samvinnu við gullsmið.

bóka tíma

Sendu okkur línu og við svörum eins fljótt og auðið er

Þessi síða notar vafrakökur (cookies). Sjá skilmála um vafrakökur

Tannlæknastofa Kópavogs og Vesturbæjar

Tannlæknastofa Kópavogs og Vesturbæjar

I will be back soon

Tannlæknastofa Kópavogs og Vesturbæjar
Takk fyrir að hafa samband, við svörum þér eins fljótt og auðið er. Ef erindið er brýnt getur þú heyrt í okkur í síma 561-2500.
Messenger